Háskóli Íslands

Um stofnunina

Markmið Rannsóknamiðstöðvar í þjóðfræði er að stunda sjálfstæðar rannsóknir á hversdagsmenningu, lífsháttum og lífssýn á okkar dögum og áður fyrr. Meginstoðir starfseminnar verði verkefni á fjórum sviðum: munnmælum, efnismenningu, trúarlífi og menningararfi.

Hlutverk

Hlutverk Rannsóknamiðstöðvar í þjóðfræði er að auka og efla rannsóknir á ofangreindu sviði, m.a. með því að:

  1. eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum á tilgreindu sviði
  2. taka að sér verkefni fyrir aðila utan sem innan Háskóla Íslands, hafa samstarf við innlendar stofnanir, fyrirtæki og samtök og leitar eftir samstarfi við erlenda fræðimenn og stofnanir á skyldu sviði.
  3. efla tengsl rannsókna og kennslu á sínu starfssviði
  4. veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknastörf á vegum rannsóknamiðstöðvarinnar eftir því sem unnt er
  5. kynna niðurstöður rannsókna m.a. með útgáfu fræðirita, með fræðilegum námskeiðum, fyrirlestrum og ráðstefnum á starfssviðinu.

Rannsóknamiðstöð í þjóðfræði heyrir undir Félagsvísindastofnun samkvæmt 3. tölulið 4. mgr. 27. gr. reglna nr. 458/2000 um Háskóla Íslands. Miðstöðin er vettvangur fyrir rannsóknir og miðlun þekkingar á sviði þjóðfræði.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is